Hans Christian Andersen's Stories
Ævintýri og Sögur
Hans Christian Andersen
Unabridged
•
9788726238006
17 hours 41 minutes
Some articles contain affiliate links (marked with an asterisk *). If you click on these links and purchase products, we will receive a small commission at no extra cost to you. Your support helps to keep this site running and to continue creating useful content. Thank you for your support!
From the publisher
Lítill, ljótur andarungi reynist vera fallegur svanur. Snædrottningin er með ís í hjartanu og litla hafmeyjan þráir að losna við fjötra hreisturs og sporðs og ganga tveimur fótum meðal manna. Ævintýraheimur Hans Christians Andersens er flestum að góðu kunnur. Þó eftir hann liggi bæði skáldsögur, leikrit og ljóð eru það listævintýri hans sem lifa með lesendum, jafnt í bóklegri- og munnlegri geymd. Þó börn séu ötulir lesendur ævintýra höfða sögur H.C. Andersen jafnt til eldri lesenda, sem eru ekki síður færir um að líta milli línanna, sársaukann, þjóðfélagsádeiluna, gleðina og boðskapinn sem þar er að finna. Brugðið er upp mynd af töfrunum í hversdagsleikanum, sem oft er býsna napur í fátæktinni en einnig af sönnum ævintýraheimum, sem leynast undir yfirborðinu. Safnið Ævintýri og sögur geymir 14 af hans fegurstu ævintýrum í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar, sem færði stóran hluta verka Andersens yfir á íslensku.